Æfingaleikur í Síkinu í kvöld

Nú er aðeins vika í að Dominos-deildin í körfunni fari af stað á ný og því ekki seinna vænna að bjóða upp á æfingaleik í Síkinu fyrir körfuþyrsta stuðningsmenn Tindastóls. Það er lið Hattar frá Egilsstöðum sem brunar á Krókinn og hefst leikurinn kl. 19:15 í kvöld (fimmtudag).
Það ku kosta þúsundkall á leikinn en körfuknattleiksdeildin minnir á að hægt er að leggja inn pöntun fyrir ársmiðum og merktum stæðum í sjoppunni en stefnt er að því að ársmiðar verði afhent á fyrsta deildarleik vetrarins þann 4. október.
Ágætlega hefur gengið hjá Tindastólsmönnum í æfingaleikjum haustsins en þó fengu strákarnir smá áminningu í fyrrakvöld um að það þurfi að hafa fyrir hlutunum í vetur. Þá mættu Stólarnir liði Skallagríms í Borgarnesi og lutu í stífbónað Fjós-parkettið. Skallagrímur vann leikinn 105-100.
Dominos-deild karla hefst fimmtudaginn 4. október en þá kemur lið Þórs Þorlákshafnar í heimsókn í Síkið. Áður en að þeim leik kemur munu bikarmeistarar Tindastóls mæta Íslandsmeisturum KR þegar Meistarar meistaranna eigast við í DHL-höll þeirra Vesturbæinga. Fer leikurinn fram sunnudaginn 30. september kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð2Sport.