Starfsmenn LNV leggjast gegn sameiningu lögregluembætta

Samkvæmt frétt á vef RÚV hafa starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar kemur fram að þeir leggjast gegn þeim hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta sem birtast í frumvarpsdrögum. Það er mat starfsmanna að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.

Í frétt RÚV stendur: „Í umsögninni segir að öryggi íbúa Norðurlands vestra byggist á því að lögregla sé til staðar, þekki samfélagið og geti brugðist við þörfum þess. Það er sá grundvöllur sem starfsmenn vilja standa vörð um og þróa áfram.

Frumvarpsdrögin taki ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli, mikilvægi staðbundinnar ábyrgðar og þeirri samfélagslöggæslu sem byggð hefur verið upp í landshlutanum. Almenn markmið um stærri og öflugri einingar komi ekki í stað rökstuddrar greiningar á því hvernig þjónusta við íbúa hvers svæðis verður tryggð og bætt.

Í umsögninni er lagt til að fallið verði frá sameiningartillögunum og að sú starfsemi sem fyrir er verði styrkt, þar á meðal rannsóknir, samfélagslöggæsla og samstarf embætta.

Verði sameiningaráform að veruleika þurfi að endurskoða drögin í grundvallaratriðum með svæðisbundinni þarfagreiningu, raunverulegu samráði, lögbundinni vernd nærþjónustunnar og tryggri fjármögnun.“

Þá er tekið fram að mörg sveitarfélög hafa þegar lagst gegn sameiningunni.

Fleiri fréttir