Ærin Dögg bar fimm lömbum
Ærin Dögg sem er á fjórða vetri og búsett á bænum Tröð við Sauðárkrók bar í dag fimm lömbum þremur hrútum og tveimur gimbrum. Ekki er algengt að fimm lömb komi hjá ám en að sögn Sóleyjar Skarphéðinsdóttur á hún von á allri flórunni þetta vorið. „Það eru komnar bæði einlemdar, tvílemdar og þrílemdar auk þess sem Sóley veit af einni sem á von á fjórum lömbum.
Frjósemin er því mikil en að sögn Sóleyjar eru lömbin væn þetta vorið og hefur sauðburður gengið vel. Dögg hefur tvisvar verið þrílemd en Sóley gerir ráð fyrir að taka undan henni einhver lömbin enda ráði hún tæplega við að mjólka öllum fimm lömbunum.