Afar annasöm helgi framundan
Það verður nóg um að vera í körfunni í þessari viku og um næstu helgi. Meistaraflokkurinn spilar tvo leiki, drengjaflokkur einn, minnibolti stúlkna keppir í Reykjavík, 9. flokkur stúlkna í Stykkishólmi og 10. flokkur drengja hér heima.
Fjörið byrjar á föstudagskvöldið þegar Tindastóll tekur á móti Stjörnunni í Iceland Express deildinni kl. 19.15. Þarna verður um afar mikilvægan leik að ræða. Stjarnan er í 5. sæti leik á undan Tindastóli, en með sigri jafnar Tindastóll Stjörnuna í tölfunni, en hefur betur í innbyrðisviðureignum. Það er því möguleiki á að lyfta sér upp um sæti vinnist leikurinn.
Drengjaflokkurinn keppir hér heima á laugardaginn kl. 17.15 við Breiðablik í A-riðli Íslandsmótsins. Strákarnir eiga ennþá möguleika á að ná í úrslitakeppnina, en verða sannarlega að vinna til að viðhalda þeim möguleikum. Fyrri leik liðanna lauk með sigri Breiðabliks 68-61 og því ljóst að um hörkuleik verður að ræða.
10. flokkur drengja keppir hér heima í B-riðli Íslandsmótsins 3. umferð. Strákarnir spila við KR-b kl. 11 á laugardaginn og við Blika kl. 14.45 sama dag. Á sunnudag eiga þeir leik við Stjörnuna b kl. 10.15 og lokaleikurinn verður gegn Þór Þ/FSu kl. 14.00.
9. flokkur stúlkna keppir í B-riðli í Stykkishólmi. Þar eru þrjú lið skráð til leiks og verður leikin tvöföld umferð. Stelpurnar eiga fyrsta leik sinn við Breiðablik kl. 11.45 á laugardag og þær spila síðan við Snæfell kl. 13.00. Á sunnudaginn eiga þær Breiðablik kl. 10.30 og Snæfell kl. 11.45.
Minnibolti stúlkna keppir í Rimaskóla í B-riðli Íslandsmótsins. Stelpurnar hefja leik kl. 12 á laugardaginn með leik við Hamar og kl. 14 sama dag spila þær við Fjölni. Á sunnudag spila stelpurnar við Hauka kl. 10 og Valsstelpur kl. 12.
Meistaraflokkurinn slær svo botninn í helgina með útileik við Hamar í Hveragerði á sunnudaginn og hefst leikurinn kl. 19.15.