Áfram unnið að útfærslu viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra

Grunnskóli Húnaþings vestra. Mynd:FE
Grunnskóli Húnaþings vestra. Mynd:FE

Byggingarnefnd viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra hefur nú unnið með tillögu VA arkitekta en hún var valin var eftir samanburðartillögukeppni um viðbyggingu við skólann og er henni jafnframt ætlað að hýsa Tónlistarskóla Húnaþings vestra.

Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að nefndin hafi fundað reglulega síðan í sumar og unnið með áskoranir sem snúa að rýmisþörf tónlistarskólans og legu viðbyggingar á lóð skólans, ásamt fjölmörgum öðrum þáttum sem snúa að undirbúningi og hönnun viðbyggingar. Í framhaldi af þessari greiningarvinnu þurfi að halda áfram að vinna að útfærslu byggingarinnar og lausnum til framtíðar, skilgreina þurfi rýmisþörf tónlistarskóla betur og gæta að góðu aðgengi milli skóla og íþróttamiðstöðvar.

 

Haldnir hafa verið fundir með VA arkitektum þar sem fyrrgreindum áskorunum var lýst og munu þeir vinna áfram að breytingum á tillögunni í samræmi við þær enda mikilvægt að vanda til alls undirbúnings í svona stórri framkvæmd.

 

Fyrstu tillögu má sjá á heimasíðu VA arkitekta.
http://vaarkitektar.is/samkeppnir/

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir