Afurðaháar kýr í Skagafirði

Ársuppgjör skýrsluhalds nautgriparæktarinnar hjá BÍ fyrir 2011 var birt í vikunni og þar kemur m.a. fram að fjórar skagfirskar kýr eru meðal níu afurðahæstu kúa landsins. Einnig kemur fram að í árslok 2011 voru 598 bú skráð í skýrsluhaldið, sem er fækkun um 9 frá árslokum 2010. Fjöldi árskúa var 23.417 sem er fækkun um 31 árskú frá árinu áður.

Á vef Landssambands kúabænda segir að meðalnyt árskúa á búi Ólafs og Sigurlaugar í Hraunkoti í Landbroti hafi verið 8.340 kg sem er glæsilegt Íslandsmet. Fyrra met var sett á búi Daníels Magnússonar í Akbraut í Holtum árið 2008, 8.159 kg mjólkur að jafnaði á árskúna. Nythæsta kýrin var Týra 120 í Hraunkoti en hún mjólkaði 12.144 kg á árinu 2011.

Í öðru sæti var Raketta frá Hóli í Sæmundarhlíð með 11.999 kg og Auðhumla frá Vöglum í þriðja með 11.848 kg. Hófý frá Keldudal var í sjöunda sæti yfir nythæstu kýrnar með 11.583 kg og Blanda frá Keldudal í því níunda með 11.440 kg.

Fleiri fréttir