Dansmaraþon 10. bekkinga Árskóla dagana 4.–5. nóvember

Hið árlega Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla hefst á morgun, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 10:00 og lýkur fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10:00. Nemendur úr árgangi 2011 dansa því í heilan sólarhring.

Logi Vígþórsson hefur stýrt dansinum um árabil en nú er Ingunn Margrét að taka við af honum og þetta árið stjórna þau dansinum saman. Upphaf og lok maraþonsins verða í íþróttahúsinu en þess á milli dansa nemendur í matsal skólans.

Kaffihús og veitingasala 4. nóvember

Gestum er velkomið að líta við, fylgjast með dansinum og njóta veitinga.

  • Kl. 10:00–13:00: Kaffihús í anddyri íþróttahússins.
  • Frá kl. 15:00: Kaffihús í matsal skólans með nýbökuðu bakkelsi.
  • Frá kl. 18:00: Pizzasneiðar og gos til sölu í matsalnum.

Dansmaraþonbolirnir eru rauðir með ljósbláu letri og fást hjá ritara skólans. Takmarkað magn er í boði. Nemendur í 10. bekk, foreldrar þeirra og starfsfólk Árskóla þakka einstaklingum og fyrirtækjum stuðninginn við dansmaraþonið.

Öll velkomin!

Fleiri fréttir