Ágætis árangur á öllum vígstöðvum hjá yngri flokkum í körfubolta
Fjölmörg yngriflokkalið Tindastóls í körfubolta voru á ferðinni í keppnisferðalögum helgina, ýmis heima eða í burtu. Krakkarnir stóðu sig vel að venju og voru sér og félagi sínu til sóma.
10. flokkur drengja keppti á heimavelli í B-riðli. Strákarnir unnu KR b 82-51, Breiðablik 68-45 og Stjörnuna b 60-55, en töpuðu fyrir sterku liði Þórs Þ / FSu 43-61. Niðurstaðan 2. sæti í riðlinum.
Það skiptust á skin og skúrir hjá 9. flokki stúlkna, en þær kepptu í B-riðli í Stykkishólmi. Þær unnu Snæfell 38-30 og Breiðablik 46-45 fyrri daginn, en þessi lið kepptu tvær umferðir um helgina. Í seinni umferðinni töpuðu stelpurnar fyrir Snæfelli 27-36 og fyrir Breiðablik 37-49. Niðurstaðan 2. sæti í riðlinum.
Minnibolti stúlkna keppti í B-riðli í Rimaskóla í Grafarvogi. Stelpurnar stóðu sig afar vel, unnu Hamar 18-15, töpuðu fyrir Val 20-22, gerðu jafntefli við Fjölni 18-18 - en ekki er framlengt í minnibolta - og unnu að lokum Hauka 35-20. Stelpurnar urðu í öðru sæti riðilsins og er það góður árangur hjá þeim.
Þá keppti drengjaflokkurinn við Breiðablik hérna heima á laugardaginn var og unnu strákarnir örugglega 76-53.