Ágúst Ólason ráðinn skólastjóri Varmahlíðarskóla

Að tillögu samstarfsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps samþykkti fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar að ráða Ágúst Ólason sem skólastjóra Varmahlíðarskóla. Ágúst hefur unnið að skólamálum frá árinu 2000 en þá byrjaði hann sem stuðningsfulltrúi og forstöðumaður skóladagvistar í Rimaskóla. Þar áður starfaði hann í tvo áratugi við meðferðar- og hjálparstarf fyrir vímuefnaneytendur.

Ágúst hóf störf við Norðlingaskóla í maí 2005 sem kennari og hefur undanfarin 3 ár starfað þar sem aðstoðarskólastjóri en hann útskrifaðist frá KHÍ 2005 sem yngri barna kennari. Hann hefur síðan þá stundað meistaranám við HÍ með áherslu á kennslufræði og skólastarf. Ágúst er kvæntur Sigríði Heiðrúnu Guðjónsdóttur textílkennara og eiga þau börnin Heiðrúnu, Óla og Hönnu.

Fleiri fréttir