Áhugamálara vantar húsgögn

Áhugamálarar í Skagafirði hafa fengið gamla Gúttó á Sauðárkróki en undan farnar helgar hefur hópurinn verið að mála og gera fínt innan dyra svo hægt verði að hefja starfsemi í húsinu.

Í ákalli frá hópnum á Facebook kemur fram að nú fari þau að vanta ýmis konar húsgöng, svo sem ísskáp, hillur, skenk/kommóðu, borð, stóla, hornsófa eða staka sófa og stóla, leirtau, mottur og fleira. Þannig að ef þú lesandi góður átt eitthvað í geymslunni sem gæti nýst hópnum þá er um að gera að hafa samband í síma 6987937.

Fleiri fréttir