Ákall til kvenna á Sauðárkróki
Í hartnær 120 ár hafa kvenfélögin í landinu verið gríðarlega mikilvæg samfélagsleg velferðarstoð. Kvenfélögin hafa ætíð starfað sem grasrótarsamtök sem hafa haft það að markmiði að styðja konur í þeim verkefnum sem hvílt hafa á herðum þeirra umfram karla. Sú kenning hefur verið sett fram að íslensku kvenfélögin séu elstu formlegu kvennasamtök í heiminum.
Kvenfélögin hafa ætíð látið að sér kveða við uppbyggingu stofnana sem sinna þjónustu við fólk. Nægir þar að nefna þá alúð sem þau hafa sýnt uppbyggingu og tækjavæðingu heilbrigðisstofnana og kvenfélögin eru oftar en ekki bakhjarlar þegar á bjátar hjá fólki í nærsamfélaginu. Það mikla starf sem kvenfélögin vinna fer ekki alltaf hátt og þau ber yfirleitt ekki mikið á góma í þjóðfélagsumræðunni.
Kvenfélögin eru þó ekki eingöngu líknarsamtök, heldur ekki síður mikilvæg menningarsamtök. Eitt af markmiðum þeirra er að skapa konum skemmtilegan og þroskandi vettvang til að ræða ýmis mál sem konum eru hugleikin. Kvenfélögin eru líka vettvangur kvenna til að gera lífið skemmtilegra og gera sér dagamun með öðrum konum.
Hinn 25. ágúst 1895 var Hið skagfirska kvenfélag stofnað á Sauðárkróki sem síðar var breytt í Kvenfélag Sauðárkróks. Á þessum 116 árum hefur félagið látið að sér kveða á ýmsum sviðum. Það hefur lagt mikið af mörkum í samfélagsþjónustu af ýmsu tagi, bæði við einstaklinga og stofnanir, en einnig staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum og skemmtunum sem auðga mannlífið. Nægir þar að nefna landsfræga dægurlagasamkeppni, áramótaskemmtanir, jólatrésskemmtanir og fleira.
Nú stendur Kvenfélagið Sauðárkróks á tímamótum. Konum í félaginu hefur fækkað og meðalaldur félagskvenna hækkar stöðugt. Við stöndum frammi fyrir því að félagið mun leggjast af innan tíðar, takist ekki að vekja áhuga yngri kynslóða á félagsskapnum og endurvekja skilning á mikilvægi kvenfélagsins.
Kvenfélag Sauðárkróks er opið öllum konum sem vilja láta gott af sér leiða í nærsamfélaginu og eiga ánægjustundir í góðum félagsskap. Kvenfélag Sauðárkróks er eins og þær konur sem í því starfa á hverjum tíma vilja hafa það. Engar kvaðir eða skyldur eru lagðar á félagskonur og árgjaldi er stillt í hóf.
Með þessu bréfi hvetjum við konur á Sauðárkróki til að ganga til liðs við okkur og hefja kvenfélagið á ný til þess sess sem það á skilið.
Mánudaginn 21. mars n.k. kl. 20:00 verður almennur félagsfundur haldinn í Húsi frítímans við Sæmundargötu. Þar munu góðri gestir, þær Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands og Sigríður Garðarsdóttir, formaður Sambands skagfirskra kvenna, kynna starfsemi kvenfélaganna.
Fundurinn er öllum opinn, en við hvetjum sérstaklega þær konur, sem langar að kynna sér kvenfélögin betur, til að mæta.
Frekari upplýsingar veita þær Helga Sigurbjörnsdóttir í síma 4535381 og Lovísa Símonardóttir í síma 8490550.
Með góðum kveðjum,
Kvenfélagskonur á Sauðárkróki