Aldrei séð jafnmikinn klaka á vellinum
Stórtækar vinnuvélar voru að störfum á Sauðárkróksvelli í gær í tilraun til að bjarga knattspyrnuvellinum en samkvæmt Sigurbirni Árnasyni vallarverði var allt að 10 sm þykkur klaki yfir vellinum.
„Ég hef bara aldrei séð svona, ég er alveg orðlaust yfir þessu,“ segir Sigurbjörn, sem hefur starfað hjá Sauðárkróksvelli sl. 27 ár, í meðfylgjandi myndbandi frá Stefáni Arnari Ómarssyni. Í myndbandinu má sjá það gríðarlega magn af klaka sem lá yfir vellinum.
Markmiðið með þessum aðgerðum var að fá loft niður í svörðinn í þeirri von að koma í veg fyrir að kal myndist og að grasrótin drepist.
http://youtu.be/-EAoYjn2Pqc