"Allsgáð með allt á hreinu"

Mikið er um sumarhátíðir og hverja helgi í sumar er boðið uppá bæjarskemmtun eða fjölskylduhátíð auk fjölmargra útihátíða um sjálfa verslunarmannahegina. Á
þessum tíma ársins eru börn og unglingar utan skóla og ekki í jafn vernduðu umhverfi og yfir vetrartímann.
Því er mikilvægt að foreldrar og samfélagið í kringum unglinga standi vörð um velferð þeirra þegar kemur að neyslu vímuefna á skipulögðum hátíðum sem óskipulögðum.
Forvarnaverkefnið „allsgáð, með allt á hreinu“ stendur nú yfir en FRÆ setur það upp eins og nokkur undanfarin sumur.  Markmið þess er að vekja athygli á vímuvörnum um verslunarmannahelgina og kostum þess að vera allsgáð um þessa stærstu ferðamannahelgi landsins. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að huga að gildum forvarnastarfs og góðra fyrirmynda.

Fleiri fréttir