Allt á fullu fyrir Jónsmessuhátíð
Undirbúningur fyrir Jónsmessuhátíð á Hofsósi gengur vel en hátíðin verður haldin um næstu helgi 21. til 22. júní. Reiknað er með að fjöldi fólks leggi leið sína á Hofsós á hátíðina sem er með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hestamót og gönguferð á föstudegi og ekki má gleyma hinni gómsætu kjötsúpu í Höfðaborg sem félag eldriborgara hefur veg og vanda af. Svo verður kvöldvaka og dansleikur með Þórunni Snorra og Halla á eftir.
Laugadagur hefst svo með hópreið hestamann, fótboltamóti, góðakstri á dráttarvélum, tjaldmarkaði og skemmtun fyrir börnin og leiktæki verða á staðnum Grillveisla verður svo við Höfðaborg kl 16:00. Um kvöldið verðu haldinn stórdansleikur með Matta Matt og vitleysingunum. „Nú er bara að drífa sig á Hófsóss um helgin með góða skapið, gönguskóna, fótboltaskóna, hestinn, gömlu dráttarvélina, og ekki má gleyma fjölskyldunni því að þarna er sannkölluð fjölskylduskemmtun að ræða þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Kristján Jónsson formaður undirbúningsnefndar.