Álftnesingar fyrstir til að vinna Stólana í haust í hörkuleik
Liðin sem að flestum eru talin sterkust í Bónus deild karla í körfunni mættust í Síkinu í gær og leikurinn stóð heldur betur undir væntingum, bæði lið sýndu góðan leik og leikurinn æsispennandi fram á síðustu framlengdu sekúndu. Því miður fyrir okkur stuðningsmenn Stólanna var það lið Álftaness sem hafði betur en lokatölur voru 105-108 að lokinni framlengingu.
Beðið hafði verið eftir þessum leik með eftirvæntingu og það mátti sjá því yfir 660 áhorfendur voru á leiknum og dágóður hópur fylgdi gestunum frá Álftanesi og þar á meðal Guðni Th. fyrrum forseti en ef Feykir man rétt þá hefur það nú sjaldnast boðað gæfu fyrir Stólana að fá þann heiðursmann í heimsókn í Síkið.
Stólarnir byrjuðu leikinn af krafti og gerðu fyrstu tíu stig leiksins. Það skortir hins vegar ekkert gæðin í leikmannahópinn hans Baldurs Þórs og þeir voru fljótir að komast inn í leikinn. Engu að síður höfðu Stólar undirtökin og leiddu 23-11 þegar átta mínútur voru liðnar en að loknum fyrsta leikhluta var átta stiga munur, 27-19. Baldur hefur farið með fallega bæn yfir sínum mönnum fyrir annan leikhluta því þeir gerðu vel að saxa á forstkot Stólanna í upphafi leikhlutans, staðan 31-29 eftir þrjár mínútur og gestirnir jöfnuðu síðan, 37-37, þegar rúmar þrjár mínútur voru til hálfleiks en Stólarnir höfðu forystuna fram að hléi, staðan 50-44.
Stólarnir ná 14 stiga forystu
Lið Tindastóls spilaði vel í upphafi síðari hálfleik og bjó sér til ágæta forystu sem varð mest 14 stig, 74-60, þegar þriðji leikhluti var hálfnaður. Gestirnir sögðu þá hingað og ekki lengra og minnkuðu muninn smám saman. Í stöðunni 82-74 gerði Taiwo fyrsta stig sitt í leiknum úr víti, Booker svaraði með þristi og Geks svaraði í sömu mynt og staðan 86-77 fyrir lokafjórðunginn.
Júlíus Orri gerði fyrstu körfu fjórða leikhluta og Stólarnir ellefu stigum yfir en þá fór að halla undan fæti hjá heimamönnum og sóknarleikurinn fjaraði út. Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir og staðan 92-86 varð heilmikið uppistand þegar leikmenn misstu kúlið og lögðu hendur hver á annan í miklum riskingum. Stór hópur leikmanna var þó að reyna að stilla til friðar. Úr varð mikil reikistefna dómara sem ræddu málin og fóru svo í skjáinn. Nokkuð augljóst þótti að Semple yrði vísað úr húsi og að Bost fengi sína aðra tæknivillu. Niðurstaðan varð hinsvegar sú að Óliver Árna var vísað úr húsi fyrir að hafa farið inn á völlinn þegar skarkalinn hófst. Kannski átti þetta að vera einhvers konar Salómonsdómur en frekar spes.
Frábær 3ja stiga nýting liðanna eða um 59%
Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en Stólunum gekk illa að koma boltanum í körfuna. Það fór svo að Stjarnan komst yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar rétt rúm mínúta var til loka venjulegs leiktíma en Nemanja Durisic, sem átti magnaðan leik, jafnaði og því þurfti að framlengja. Stólarnir höfðu frumkvæðið framan af en körfur frá Semple og Basile komu Álftnesingum í forystu sem þeir héldu allt til loka leiksins.
Semsagt; frábær leikur en ömurleg úrslit. Liðin sýndu frábæra takta og ekki vantaði hungrið og baráttuna. 3ja stiga nýtingin var til fyrirmyndar eða um 50% en Stólarnir settu 17 af 36 niður og Álftnesingar 15 ar 29 og í raun var mikið jafnræði með liðunum í tölfræðiþáttum leiksins en gestirnir þó oftar en ekki ofan á.
Nemanja var stigahæstur í liði Tindastóls með 29 stig, Júlíus Orri 19 líkt og Bost sem átti að auki sjö stoðsendingar. Þá var Murkey með 14 stig, Geks og Raggi voru með níu stig en Raggi tók átta fráköst, Arnar var með fimm stig og Taiwo þrjú. Þegar upp var staðið var Basile atkvæðamestur leikmanna en hann gerði 26 stig og átti 13 stoðsendingar. Sex leikmenn gestanna gerðu tíu stig eða meira í leiknum.
Næsti leikur Stólanna er á Egilsstöðum gegn liði Hattar sem hefur unnið tvo af fjórum leikjum sínum og til alls líklegt. Áfram Tindastóll!
