Allt að verða klárt fyrir Jónsmessuhátíð
Nú er allt að verða klárt fyrrir Jónsmessuhátíð á Hofsósi en hún hefst í kvöld kl 22:00 með miðnæturhlaupi frá sundlauginni þar sem hlaupið verður um nágrenni Hofsóss. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 4 km og 10.5 km og svo verður sundlaugin opin til kl 01:00 eftir miðnætti.
Þan 17. júní verður svo félagsmót Svaða, Jónsmessuganga fram í Þórðarhöfða, kjötsúpa og kvöldvaka í Höfðaborg og svo verður dansað eftir nóttu. Á laugadegi verður knattspyrnumót, tjaldmarkaður, barnaskemmtun, og grillveisla við Höfðaborg. Og svo er endað með stórdansleik í Höfðaborg á laugardagskvöldi.
-Nú er bara að skella sér á Hofsós um helgina með fjölskylduna, tjaldið og góða skapið og njóta helgarinar því að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, segir Kristján Jónsson einn skipuleggjenda sem lofar góðri skemmtun á Jónsmessuhátíðinni.