Alþingismenn fá bréf frá Drangeyjarfélaginu

Drangeyjarfélagið í Skagafirði hefur sent öllum alþingmönnum tölvupóst þar sem mótmælt er þeim ‚fáránlegu‘ hugmyndum Umhverfisráðherra að friða fimm tegundir Svartfugla eins og segir í kynningu. Að mati félagsins er óviðunandi að veiðar séu algerlega bannaðar á þessum tegundum fugla þegar svo litlar upplýsingar eru fyrir hendi. Velkunn setning er að náttúran skuli njóta vafans og kannski erfitt að andmæla því. Hins vegar er það svo að skortur á upplýsingum á ekki að leiða til þess að allt sé friðað.

Það er von Drangeyjafélagsins að bréfið verði til þess að einhverjir aðilar á Alþingi Íslendinga opni þó ekki nema annað augað og sjái hversu fáránleg hugmyndin er að friða fuglategundirnar.

Drangeyjarmönnum þykir miður að ekki hafi verið rætt við þá sem best þekkja fuglabjörgin við Ísland og leitað í þeirra þekkingarbrunn við vinnslu skýrslunnar. Segja þeir að svo virðist sem skýrsluhöfundar hafi einungis treyst þeim takmörkuðu rannsóknum sem fyrir liggja og talið ástæðulaust að afla sér upplýsinga hjá þeim mönnum sem alist hafa upp við björgin, slíkt getur vart talist til faglegra vinnubragða.

Þá er sú hætta yfirvofandi að veiðar og eggjataka verið alveg bannaðar til lengri tíma og þá er stór hætta á því að aldagamlar hefðir við veiðar og eggjatöku glatist, að mati Drangeyjarmanna.

Í bréfinu er bent á að rannsóknir á fjölda bjargfugla sem starfshópurinn styðst við sé kapítuli fyrir sig því að í skýrslunni er ekki vísað til neinna gagna sem aðgengileg eru öðrum en nefndarmönnum en vísað er til talninga eftir ljósmyndum teknum í nokkrum fuglabjörgum. „Einu björgin sem hafa verið vöktuð og talningar endurteknar svo eitthvert mark sé á takandi eru í Krísuvík og Skoruvík. Ekkert liggur fyrir um það hvort fuglinn hafi flutt sig úr björgunum í önnur björg þar sem auðveldara er að koma upp ungum. Engar upplýsingar eru til um það hvort stofnar hafi í raun minnkað svo sem haldið er fram heldur þess einungis getið að á ákveðnum tímum eru færri fuglar í þessum björgum en verið hefur.“

Fleiri fréttir