Amínó fæðubótarefni Iceprotein og Protis fá góðar undirtektir

Iceprotein og Protis á Sauðárkróki settu nýlega á markað vörulínu byggða á áralöngum rannsóknum á heilsubætandi áhrifum fiskprótína. Hólmfríður Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Iceprotein segir viðtökurnar hafi farið fram úr björtustu vonum.
Amínó setti þrjár gerðir fæðubótarefna á markað þann 1. febrúar síðastliðinn; Amínó Liði, Amínó Létt og Amínó 100% hreint fiskprótín. Fæðubótarefnin hafa fengið ákaflega jákvæðar undirtektir.
„Við höfum verið að fá töluvert af reynslusögum. Varðandi Amínó Liði sem inniheldur efni sem bæta heilbrigði liða þá er fólk búið að hafa samband við okkur og segja frá minni þrota og minni verkjum í liðum. Fólk sem er að huga að líkamsþyngdinni og hefur verið að kaupa Amínó Létt sem inniheldur efni sem hafa áhrif á mettunarferli og sykurlöngun hefur verið mjög ánægt með þá vöru og segist finna töluverðan mun á því að það sé að borða minna á milli mála og að það verði fyrr satt og borði þar að leiðandi minna. Amínó 100% er hreint fiskprótín en prótín er öllum lífsnauðsynlegt.“
Hólmfríður segir vitneskju um mikilvægi á neyslu prótíns hafi aukist mikið hjá fólki. „Fólk hefur verið að láta okkur vita af ánægju sinni með fiskprótínið, þá sérstaklega vegna þess að það virðist auka úthald yfir daginn og einnig virðist það hjálpa fólki að jafna sig eftir æfingar,“ segir hún. „Ég er sannfærð um að fiskprótín er prótín framtíðarinnar, fólk er alltaf að hugsa meira og meira út í hreinleika og uppruna fæðunnar og þorskurinn sem við erum að vinna prótínið úr er 100% náttúrulegur.“
Hólmfríður er í viðtali í Feyki vikunnar þar sem hún segir nánar frá því hvernig Amínó fæðubótarefnin hafa mælst fyrir og jafnframt frá stofnun fyrirtækisins Protis, sem stofnað var utan um vörulínuna.