Anastasia- Ekki bara týnd prinsessa!
Eins og mörgum er nú sjálfsagt farið að gruna hefur Fröken Fabjúlöss alltaf allar klær úti þegar kemur að förðun og fegurð! Eitt er það umfram margt annað sem Fröken Fabjúlöss finnst að verði að vera í lagi þegar verið er að lappa upp á ásjónuna, og það eru augnabrúnirnar! Fallegar og vel hirtar augnabrúnir eru að mati okkar hérna í tískuhorni Fabjúlössmans punkturinn yfir I-ið og kirsuberið á kökuna.
Fröken Fabjúlöss hefur farið í gegnum marga rútínuna þegar kemur að augnabrúnaskerpingu. Lengi vel litaði hún brúnirnar eins og er svo vinsælt þessi misserin, en upp á síðkastið hefur hún alveg sleppt því, klippir þær og "teiknar" brúnirnar svo upp þegar förðunarprósess fer í gang (þessi aðferð er kannski frekar ópraktísk upp á það að gera að nú er Frökenin nauðbeygð og tilneydd til að mála sig á hverjum degi ef hún vill ekki líta út eins og hálfteiknuð skopmyndafígúra...).
Hingað til hefur sú aðferðin verið brúkuð við förðunarborðið hérna í höfuðstöðvum Fabjúlössmans að dýfa pennsli í svokallað Mixing Liquid frá Make Up Store (algjört undraefni að mati Fröken Fab, svo gloríöss í svo margt!!) og fara svo með pensilinn í brúnann augnskugga og búa þannig til hálfgerða málningu sem hún svo mótar brúnirnar með. Þessi aðferð er í sjálfu sér fín, en of tímafrek fyrir óþolinmóða förðunardífu eins og Fröken Fab!
En svo fóru að berast þær fregnir að brúnaefnið frá fyrirtækinu Anastasia Beverly Hills væri undraefni og gat Frökenin ekki stillt sig um að splæsa á sig Dipbrow Pomade frá þeim. Þegar Frökenin svo opnaði kassann runnu tímabundið á hana tvær grímur... Krukkan var ekki mikið stærri en prufuglas og sá Frk.Fab það fyrir sér að hún myndi tæma úr þessu á sirka 45 mínútum!
En svo var farið í prófanir... Ekki var Frökenin lengi að komast að því að það er mikið meira en nóg rétt að dýfa pennslinum í krukkuna og í huganum breyttist endingartími úr 45 mínútum í allavega ár! Næst var að sjá hvort dýrðin væri jafn meðfærileg og búið var að lofa upp á hana! Eftir nokkrar pensilstrokur gerði Fröken Fabjúlöss sér grein fyrir því að nú væri ekki aftur snúið, hún var loksins búin að finna augnabrúnalitinn sem hún gæti ekki lifað án! Ekki nóg með að hann sé vel þekjandi heldur er það nánast lygasaga hversu auðvelt er að vinna með hann! Og bónusinn er að Dipbrow Pomade er vatnshelt!
Ekki hefur Frökenin orðið vör við að þessi dásemd sé seld á Íslandi, en hægt er að fá Dipbrow Pomade, og allskonar fallegt og fínt (eins og tildæmis Contour Kit-ið þeirra sem heldur vöku fyrir Fröken Fab þessa dagana!) á anastasia.net.
Hér fyrir neðan má svo sjá tvö sýnishorn af regnbogum Fröken Fabjúlössar, á þeim fyrri er skartar hún tímafreku Mixing Liquid/augnskuggaaðferðinni góðu og á seinni myndinni er hún komin með Anastasia Beverly Hills Dipbrow Pomade.
Make Up Store Mixing Liquid/Brúnn augnskuggi:
Anastasia Beverly Hills Dip Pomade:
Fröken Fabjúlöss mælir alveg rúmlega 100% með Anastasia Beverly Hills!