Annað tap gegn Völsungi hjá mfl.kvenna

Í gær þriðjudaginn 8.júní lék mfl.kvenna gegn Völsungi á Húsavík. Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli stöðubaráttu alls staðar á vellinum og var leikurinn algerlega í járnum. Hvorugt liðið gaf tommu eftir og varð raunin að ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum og staðan því 0-0.

Í seinni hálfleik tók Völsungur völdin á vellinum og sótti meira án þess að skapa sér afgerandi færi. Varnarvinna Tindastólsstúlkna var mjög góð og flestar sóknir Völsungsstúlkna enduðu með skoti af löngu færi.

En á 72.mínútu þá kemur smá einbeitingarleysi hjá Tindastólsstúlkum og nær Völsungur forystunni, staðan 1-0. Eftir það var eins og allur vindur væri úr Tindastólsstúlkum því áður en yfirlauk, þá höfðu heimastúlkur bætt við tveimur mörkum á 85. Og 92.mínútu . Lokatölur urðu því 3-0.

Byrjunarlið

Tóta(M), Fríða, Sunna, Helga, Svava Rún, Thelma, Rakel, Brynhildur, Laufey, Svava Stefanía og Guðný Þóra.

Bekkur

Fanney, Sigríður Vava, Harpa og Snæja

Skiptingar

33.mín Sigríður Vava inn fyrir Svövu Stefaníu

58.mín Snæja inn fyrir Brynhildi

79.mín Fanney inn fyrir Fríðu

84.mín Harpa inn fyrir Rakel

Fleiri fréttir