Argandi augnlitur!

Fröken Fabjúlöss getur orðið algjörlega dáleidd þegar hún sér fallega förðun, sérstaklega ef förðunin nær að undirstrika augnlitinn! Það er smá galdur á bak við það að láta augnlitinn "poppa" út og undirstrika fegurðina, og það vill bara hreinlega svo ótrúlega vel til að Frk Fab getur fram í dagsljósið dregið hver galdurinn á bak við það trikk er!

Það vill nefnilega svo til að þó svo að það sé allt leyfilegt í förðun og ekkert sem er hreinlega bannað, þá eru vissir litir sem ýta undir og draga út augnlitinn sem gerir það að verkum að gangandi vegfarendur eigi það á hættu að týnast í augnum á viðkomandi glamúrpíu!

Græn augu:
Það besta sem græneygða gyðjan kemst í eru litir með rauðum tónum. Þegar fólk með græn augu er með blóðhlaupin augu, tildæmis eftir að hafa grátið, þá verður augnliturinn alveg æpandi grænn og ástæðan fyrir því er einfaldlega sá að rauði liturinn "komplimentar" græna litinn í augunum og dregur hann fram. Nú erum við hérna hjá heimsveldi Fab ekki að mæla með því að græneygðar konur fari alfarið að nota skærrauðann augnskugga, enda gæti það orðið svolítið krípí... En allir bleikir, ljós og dökk fjólubláir jafnvel appelsínugulir litir innihalda eitthvað af rauðu litarefni, þannig að af nógu er að taka til að draga fram grænar glyrnurnar!

Blá augu:
Bláeygða bomban ætti ekki að vera feimin við appelsínugula litinn!! Sama á við í þessu tilfelli eins og hjá græneygðu gyðjunum, við hérna í nafla Fabismans ætlumst ekki til þess að bláeygðar konur eigi hér eftir að einblína á appelsínugulann augnskugga og ekkert annað. Margir litir innihalda appelsínugul litarefni og þar á meðal má finna bronze litaða, gyllta og koparlitaða og munu þessir litir tildæmis allir draga fram bláa litinn með de samme!

Brún augu:
Brúneygðu beibin eru heppnar að því leytinu til að það er enginn litur sem þær þyrftu að halda sig frá, brún augu þola alla liti! En þeir litatónar sem helst draga fram brúnu augun eru bláir, grænir og fjólubláir. Það er náttúrulega hægt að leika sér endalaust með þessar litasamsetningar; fyrir dramatíska augförðun að nota kannski svartann undirtón og skyggja svo með tildæmis fjólubláu, en á venjulegum degi getur einfaldur dökkblár eyeliner dregið fram brúnu augun og heillað skarann!

Nú erum við hérna í tískuhorni Fab ekki að banna konum með vissann augnlit að nota hina eða þessa litina, alls ekki! En gott er að hafa upplýsingarnar að ofan í huga ef einbeittur ásetningur er sá að gera augun áberandi og draga fram og ýta undir þá náttúrulega fegurð sem allar konur búa yfir!

 

Fleiri fréttir