Arnar Guðjónsson er nýr þjálfari Tindastóls í körfunni

Arnar þjálfari og Dagur Þór formaður voru kampakátir þegar blaðamaður Feykis mætti á Hótel Varmahlíð þar sem skrifað var undir samninginn. Hver er ekki ánægður að sjá Gunnhildi? MYND: GG
Arnar þjálfari og Dagur Þór formaður voru kampakátir þegar blaðamaður Feykis mætti á Hótel Varmahlíð þar sem skrifað var undir samninginn. Hver er ekki ánægður að sjá Gunnhildi? MYND: GG

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Arnar Guðjónsson og mun hann taka við sem þjálfari meistaraflokks karla næstkomandi tímabil. Í tilkynningu sem kkd. Tindastóls sendi frá sér í dag kom fram að Arnar mun einnig sjá um Körfuboltaakademíu Tindastóls og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og aðstoða við skipulag á þjálfun yngri flokka.

„Arnar segist mjög glaður að vera mættur í Skagafjörðinn. „Mig hefur lengi langað að fá tækifæri til að starfa hér og er þakklátur fyrir traustið. Við viljum setja lið á völlinn sem speglar það frábæra samfélag sem er hér, lið sem verður þekkt fyrir dugnað og gleði. Því ef ég þekki Skagfirðinga á eitthverju, þá er það að þeir eru hver öðrum duglegri til vinnu og þeim finnst gaman að hafa gaman. Ég vill að liðið okkar Tindastóll endurspegli það.”

Dagur formaður er spenntur fyrir samstarfinu við Arnar. “Við erum spennt að fá Arnar norður í Skagafjörðinn. Tindastóll hefur mikinn metnað til að vera í allra fremstu röð bæði hvað varðar uppbyggingu meistaraflokkana okkar og alla umgjörð. Við hlökkum til að vinna með Arnari að komandi verkefnum”

Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Arnar velkominn til starfa og velkominn í Síkið!“

Ferill þjálfarans nýja

Allir körfuboltaunnendur kannast við Arnar og þá sérstaklega sem þjálfara en ekki leikmann. Hann spilaði eitt tímabil í efstu deild með liði Skallagríms en hann á að baki öflugan þjálfaraferil. Hann varð þjálfari Sindra á Höfn árið 2005, gerðist svo aðstoðarþjálfari hjá FSu tveimur árum síðar áður en hann fluttist til Danmerkur 2009. Fyrst var hann aðstoðarþjálfari hjá Aabyhoj og síðar aðalþjálfari en var síðan ráðinn aðstoðarþjálfari Svendborg Rabbits 2013 þar sem Craig Pedersen þjálfaði. Þegar Craig hætti tók Arnar við starfi hans og skilaði Svendborg Rabbits í þriðja sæti dönsku deildarinnar vorið 2017.

Vorið 2018 var hann síðan ráðinn þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ og stjórnaði því ágæta liði þangað til vorið 2024. Þá hóf hann störf hjá KKÍ en er nú mættur í Mekka íslenska körfuboltans – það er bara þannig. Áhugasamir geta kynnt sér nánar afrekaskrá Arnars á Wikipedia >

Fleiri fréttir