Árni Rúnar Hrólfsson með brons í 800m á MÍ

Árni Rúnar Hrólfsson úr Tindastól/UMSS vann til bronsverðlauna í 800m hlaupi á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum, innanhúss, sem fram fór í Laugardalshöllinni í Reykjavík 5.- 6. febrúar. Hann hljóp 800m á 2:02,77mín, sem er nálægt hans besta árangri innanhúss. Árni Rúnar var eini Skagfirðingurinn, sem náði að standa á verðlaunapalli að þessu sinni, en meiðsli nokkurra keppenda okkar settu strik í reikninginn.

ÍR-ingar höfðu yfirburði á mótinu, sigruðu í stigakeppninni, og einnig í stigakeppni bæði karla- og kvennaflokka.

Fleiri fréttir