Ársalabörn í göngutúr

Þegar blaðamaður Feykis átti leið um götur Sauðárkróks í heldur dumbungslegu veðri í gær mátti sjá barnahóp, ásamt fylgdarfólki, á ferð meðfram Sauðánni. Þessi litríki og glaðlegi hópur lífgaði upp á daginn og umhverfið og því tilvalið að staldra við og smella af þeim mynd.

Um var að ræða þá nemendur leikskólans Ársala á Sauðárkróki sem ekki eru komnir í sumarfrí, en að sögn starfsmanns voru fremur fá börn eftir í leikskólanum þessa dagana, enda líður að sumarlokun sem að þessu sinni stendur í tvær vikur.

Fleiri fréttir