Artemisia sigraði í gæðingafimi

Artemisia Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli. Mynd/KS-Deildin á Facebook.
Artemisia Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli. Mynd/KS-Deildin á Facebook.

Fjórða mót KS-Deildarinnar í hestaíþróttum var haldið í reiðhöllinni Svaðastöðum í gærkvöldi. Sigurvegarar kvöldsins eru Artemisia Bertus og Korgur frá Ingólfshvoli. Samkvæmt Facebook-síðu KS-Deildarinnar hlutu þau einkunnina 8,25 í úrslitum eftir frábæra sýningu. 

Úrslit kvöldsins

1. Artemisia & Korgur frá Ingólfshvoli - 8,25

2. Mette Mannseth & Háttur frá Þúfum - 7,93

3. Bjarni Jónasson & Randalín frá Efri Rauðalæk - 7,66

4. Helga Una & Vág frá Höfðabakka - 7,51

5. Þórarinn Eymundsson & Narri frá V-Leirárgöðrum - 7,35

Þann 6. apríl verður keppt í skeið og slaktaumatölti en það verður jafnframt lokamót KS-Deildarinnar. 

Fleiri fréttir