Áskorendamót Riddara Norðursins í kvöld
Áskorendamót Riddara Norðursins verður haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum í kvöld, föstudagskvöldið 13. mars. Mótið hefst kl 20.00 og kostar 1000 krónur inn. Eins og seinustu ár skora Riddarar Norðursins á fjögur lið til keppni við sig. Þrjú af þessum liðum hafa mætt til keppni áður, þau eru: Vatnsleysa, Viðar á Björgum og Lúlli Matt. Auk þessara liða kynna Riddarar með ánægju til keppni nýtt lið, Hafsteinsstaði.
Keppt er í tölti, fjórgangi, fimmgangi og skeiði. Hvert lið sendir einn keppenda í hverja grein og einungis eru riðin úrslit. Að sjálfsögðu vinnur svo stigahæsta liðið.
Þar sem að maður er manns gaman verða Riddarar með gleði og glens í anddyri reiðhallarinnar að móti loknu og vonast að sjálfsögðu til að sjá sem flesta.