Áskorendamót Riddara Norðursins um helgina
Áskorendamót Riddara Norðursins verður haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir laugardaginn 23. mars nk. kl. 20. Í auglýsingu frá Riddurunum kemur fram að sömu lið munu keppa í ár og kepptu í fyrra þegar Vatnsleysa vann. Verulega spennandi að sjá hver ber sigur úr býtum árið 2013, segir í auglýsingunni.
Liðin sem keppa eru Narfastaðir, Vatnsleysa, Lúlli Matt, Skörðugil og Riddarar Norðursins. Fyrirkomulag mótsins er á þann veg að Riddarar Norðursins hefur skorað á fjögur lið til keppni. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði. Einungis verða riðin úrslit og aðeins einn aðili úr hverju liði keppir í hverri grein.
„Við vonumst til að sjá sem flesta í höllinni að horfa á vígalega hesta og gleðjast með okkur,“ segir loks í auglýsingunni.
Miðaverð er 1000 kr.