Ásókn í refa- og minkaveiði í Húnaþingi vestra
Á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var í síðustu viku var farið yfir umsóknir refa- og minkaveiði í Húnaþingi vestra árin 2011-2014. Tölverður fjöldi umsókna barst nefndinni sem hefur ákveðið við hverja verður samið.
Umsóknir bárust frá eftirtöldum um grenjavinnslu:
- Kristófer Jóhannessyni í Miðfirði og til vara í Hrútafirði og Víðidal.
- Baldri Heimissyni og Konráð P. Jónssyni í fyrrum Þverárhreppi.
- Frá Skúla Sigfússyni í fyrrum Þorkelshólshreppi og Víðdalstunguheiði.
- Frá J. Óskari Sigurbjörnssyni í fyrrum Kirkjuhvammshreppi.
- Frá Einari Sigurjónssyni í Hrútafirði.
- Frá Sigurbjarti Benediktssyni í Þorkelshólshreppi.
- Frá Ara Arasyni í Hrútafirði og til vara í Víðidal.
- Frá Herði Gylfasyni í Hrútafirði.
- Frá Pétri Arnarssyni í Hrútafirði.
- Frá Mikael Þór Björnssyni í Hrútafirði.
Landbúnaðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að ganga frá samningum um grenjavinnslu við eftirtalda:
- Ara Arason í Hrútafirði (Svæði I).
- Kristófer Jóhannesson í Miðfirði (Svæði II).
- J. Óskar Sigurbjörnsson á Vatnsnesi (Svæði III).
- Baldur Heimisson og Konráð P. Jónsson í Vesturhópi (Svæði IV).
- Skúla Sigfússon og Sigurbjart Benediktsson í Víðidal (Svæði V).
Umsóknir um minkaveiði bárust frá eftirtöldum:
- Frá Helga Pálssyni í Miðfirði (Svæði I).
- Frá Þorbergi Guðmundssyni og Kristjáni Sv. Guðmundssyni í Miðfirði (Svæði III).
- Frá Þormóði Inga Heimissyni á Vatnsnesi (Svæði IV).
- Frá Þormóði Inga Heimissyni og J. Óskari Sigurbjörnssyni í Vesturhópi (Svæði IV).
- Frá Kristmundi Ingþórssyni í Víðidal og víðar (Svæði V).
Landbúnaðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að ganga frá samningum um minkaeyðingu við eftirtalda:
- Kristmund Ingþórsson í Hrútafirði (Svæði I).
- Helga Pálsson í Miðfirði (Svæði II).
- Þorberg Guðmundsson og Kristján Sv. Guðmundsson í Miðfirði (Svæði III).
- Þormóð Inga Heimisson og J. Óskar Sigurbjörnsson á Vatnsnesi og í Vesturhópi (Svæði IV).
- Kristmund Ingþórsson í Víðidal (Svæði V).