Átak til atvinnusköpunar

Umsóknarfrestur er til 28. september.
Umsóknarfrestur er til 28. september.

Opnað var fyrir umsóknir í Átak til atvinnusköpunar laugardaginn 5. september og verður umsóknafrestur til kl 12 á hádegi mánudaginn 28. september, eins og sagt er frá á heimasíðu SSNV.

Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem hefur það að markmiði að styðja við þróun nýsköpunar á fyrri stigum og að styðja við undirbúning markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja.Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu og má finna nánari upplýsingar á heimasíðu miðstöðvarinnar.

Fleiri fréttir