Atlantic Leather verðlaunað

World Leather tímaritið hefur nú sett af stað, í fimmta skiptið, keppni um bestu sútunarstöð í heimi. Skoðaðar voru 13 verksmiðjur í Evrópu að þessu sinni og valdar tvær bestu og það voru Atlantic Leather á Sauðárkróki og Tärnsjö Garveri í Tärnsjö í Svíþjóð. Veitt eru verðlaun fyrir svæði; Evrópu, Asíu (fyrir utan Kína), Kína, Ameríku og Afríku. Svo er valinn sigurvegari fyrir heildina. 

Þetta verkefni var sett af stað fyrir nokkrum árum og hefur það markmið að upplýsa um rekstur sútunarverksmiðju; að það sé ekki skítugur og mengandi rekstur, þó að undantekningar séu á því. Dregnir eru fram þeir sem standa sig best í sútun og er þá horft til hvaða efni eru notuð og hvernig, hvort úrgangsmálum sé sinnt, nýting hráefna, orkunotkun, hvaða laun eru greidd og almenn framkoma við starfsfólk, samstarf við önnur fyrirtæki og svo almenn þekking á sútun og bestu aðferðum til sútunar.
Tveir menn komu hingað, blaðamaður hjá World Leather og fyrrverandi kennari við sútunarskólann í Northamton, og gerðu þeir úttekt á vinnslunni. Bæði tæknilegri og einnig félagslegum þáttum. Eins og áður komu fram fóru þeir í 13 verksmiðjur í Evrópu og tvær bestu voru valdar, þetta er því mikill heiður.

Feykir óskar Atlantic Leather innilega til hamingju og hlakkar til að fylgjast með framhaldinu.

Fleiri fréttir