Atskákmót Sauðárkróks
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
01.02.2012
kl. 08.39
Fimmtudaginn 26. janúar á afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák, Friðriks Ólafssonar, var teflt víðsvegar á landinu honum til heiðurs. Skákfélag Sauðárkróks greip tækifærið og blés til atskákmóts.
Í gærkvöldi lauk 6. umferð af 9 og er Jón Arnljótsson einn efstur með fullt hús vinninga, en Unnar Ingvarsson og Christoffer Munkholm koma skammt á eftir. Alls taka 9 keppendur þátt í mótinu sem lýkur næsta þriðjudag.
