Auðna ræður við hvers manns lífi

Ástsæll er ólatur maður er málshátturinn sem Frú Frábær fékk í páskaegginu sínu þessa páskana. Frúin er mjög hugsandi yfir málshættinum í tvennum skilningi, í fyrsta lagi er hún viss um að þarna sé um karlmann að ræða og í öðru lagi er eiginmaður hennar algjör letingi og gufa og á þá málshátturinn við hvorugt þeirra. Er kannski verið að lauma að henni að hún ætti að elska letingjann sinn minna eða jafnvel að fara að elska hinn dugmikla nágranna sinn sem aldrei fellur verk úr hendi? –Ég hætti öllum hugsunum um þetta þegar minn elskulegi letingi og gufa las upp sinn málshátt: Auðna ræður við hvers manns lífi! Alveg frábær málsháttur!

Fleiri fréttir