Auglýst eftir umsóknum til Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra
Húnaþing vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu, að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu. Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi á svæðinu. Hér er fyrst og fremst um verkefna- og framkvæmdastyrki að ræða en ekki rekstrarstyrki eða styrki til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.
Hægt er að nálgast úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og fleiri gögn er varða Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra hér.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu gudny@hunathing.is.
Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 14. júlí nk.