Augnayndi!

Seint verður hægt að halda því fram að Fröken Fabjúlöss sniðgangi förðun eða nokkuð sem að þeirri list snýr. Eitt af ótal atriðum sem heilla okkur hérna í heimsveldi Fab í sambandi við förðun er fjölbreytileikinn.

Förðun getur nefnilega verið smá maskarasletta til að líta ekki út eins og haugur hjá tannlækninum, litríkir eye-linerar til að hrista upp hversdagsleikann á hundleiðinlegum þriðjudegi eða dramatísk förðun til að snúa höfðum föngulegra pilta þegar haldið er á galeiðuna! Allt er þetta gert í nafni hinna dásamlegu fagurfræða og er af hinu góða.

En á netrúntum seinustu missera hefur Frk Fab annað slagið dottið um farðanir sem er ekki hægt að flokka öðruvísi en algjör listaverk! Þetta eru ekki kannski svona þessar týpísku farðanir í nokkrum einasta skilningi þess orðs, heldur eru þetta verk listamanna sem eru að láta innblásturinn, hæfileikana og hugmyndaflugið algjörlega stjórna penslinum. Við hérna í förðunarhorni Fabismans getum ekki annað en tekið ofan fyrir þessum snillingum í lotningu og vonað að einhverntímann náum við að komast með tærnar þar sem þau hafa hælana!

Fleiri fréttir