Axel í dönsku deildina
Karfan.is segir frá því að Skagfirðingurinn Axel Kárason mun ekki leika með Tindastól næsta vetur. Hann hefur ákveðið að leika með danska liðinu Værlöse þar sem hann mun halda áfram dýralæknanámi sínu. Þetta staðfesti Axel við karfan.is
Værlöse eru nýliðar í dönsku úrvalsdeildinni og eru staðsettir í Kaupmannahöfn. Þjálfari liðsins Jonas Sörensen segir á heimasíðu Værlöse koma Axels sé frábært fyrir hið unga lið sem er að hefja baráttuna í úrvalsdeildinni. Værlöse var hluti af BF Copenhagen sem átti að verða stórlið á evrópskan mælikvarða en fór svo flatt peningalega og er Værlöse núna fyrst að koma upp aftur.
Karfan.is heyrði í Axel og spurði hvað hann væri að fara að gera í Danmörku.
Ég ætla að færa mig yfir í danska dýralæknaháskólann, aðallega því það hentar betur körfuboltafíklum að vera þar. Svo er það líka nær Íslandi og því auðveldara að sækja viðburði eins og þorrablót yfir veturinn.
En afhverju Værlöse?
Ég nefndi það við nágranna minn í vor að mig langaði til Danmerkur, og hann benti mér á að Værlöse væri að koma upp í efstu deild og gæti verið spennandi kostur. Ég kom mér í samband við þjálfarann og við vorum ekki lengi að komast að þeirri niðurstöðu að leik- og þjálfunarstílar okkar ættu samleið.
En hvernig líst þér á liðið og þjálfarann?
Maður fær svona spurningar á hverju sumri, hvort sem það er um nýja liðið, nýja útlendinginn eða nýja þjálfarann. Ég hef lært það á þessum árum að fordómarnir (jákvæðir eða neikvæðir) standast sjaldan og ætla því ekki að mynda mér neina skoðun fyrirfram.
Þekkir þú eitthvað til í dönsku deildinni?
Nákvæmlega ekki neitt.
Hægt er að skoða Körfuna.is hér
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.