Axel Kára - Eftir þennan fyrsta leik getur maður ekki verið annað en bjartsýnn
Skagfirðingurinn Axel Kárason er einn af þeim fjórtán sem freista þess að koma Íslenska landsliðinu í körfubolta inn á EuroBasket 2017 en liðið gerði vel sl. miðvikudag er það lagði lið Sviss að velli 88-72 . Þetta var fyrsti leikur Íslands í undankeppninni en ljóst er að erfiir leikir eru framundan.
Íslenska liðið byrjaði af krafti og hafði leikinn í höndum sér fram að hálfleik með stöðuna 47-29. Gestirnir spýttu í lófana í upphafi seinni hálfleiks og tókst að minnka muninn minnst í átta stig í þriðja leikhluta en Íslendingar náðu að halda haus svo um munaði og sigruðu eins og áður sagði með 16 stiga mun. Næsti leikur okkar manna er gegn Kýpur á útivelli næsta sunnudag og og verður gaman að fylgjast með þeirri viðureign.
„Við renndum svolítið blint í sjóinn með leikinn, auðvitað skoðum við liðið á myndböndum fyrir leik, en þetta var í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem við mætum Sviss, þannig að það var alltaf smá óvissa. En eftir að leikurinn var kominn í gang sást að við ættum að geta náð mjög hagstæðum úrslitum,“ sagði Axel aðspurður um hvort liðið hafi átt von á að leiða leikinn út í gegn með þetta miklum mun.
Hann segir að liðið vilji halda uppi hraðanum, án þess þó að spila villt. Sækja að körfunni og fá svo boltann þaðan í opin skot.
„Eftir þennan fyrsta leik getur maður ekki verið annað en bjartsýnn. En í svona keppni er tvennt ólíkt að spila á heima- eða útivelli og því getum við ekki annað en nálgast þessa þrjá leiki sem við eigum núna á útivelli með virðingu. Belgarnir sýndu í hinum leiknum í riðlinum að þeir eru líkamlega sterkir og gott varnarlið, héldu Kýpverjum í 46 stigum,“ segir Axel.
Axel fer mjög varlega þegar hann er spurður hvort Ísland sé að fara aftur á EuroBasket.
„Þó að fyrsta skrefið hafi verið stigið, þá er nú of snemmt að koma með einhverjar yfirlýsingar. Menn eru ekkert komnir út á Krók þó þeir hafi haft það niður afleggjarann. Úrslit í öðrum riðlum skipta líka miklu máli þar sem það fara ekki öll lið sem enda í öðru sæti í sínum riðli á lokamótið. Þannig að það er mikilvægt að ná í sem flesta sigra, en einnig mun hvert stig skipta máli því heildarstigamunur, plús eða mínus, kemur örugglega til með að skera úr um í einhverjum tilfellum hverjir fara á EuroBasket 2017.“