Axel Kára til liðs við Svendborg
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
15.10.2015
kl. 12.42
Á danska körfuboltavefnum fullcourt.dk er sagt frá því að Skagfirðingurinn og landsliðsmaðurinn Axel Kárason, sem leikið hefur með liðinu Værløse hafi gengið til liðs við Svendborg.
Haft er eftir Troels Mortensen þjálfara liðsins að Axel sé mikil keppnismaður og það sé afar ánægjulegt að fylgjast með honum spila. „Hann er þessi týpa sem gefst aldrei upp,“ segir Troels í viðtali á vefnum. Hann segist bera mikla virðingu fyrir Axel, sem sé óþreytandi við að ná boltanum hvenær sem færi gefst.