Axel Kára yrkir baráttuóð í anda Davíðs

Eitt af því sem íslensku landsliðsmennirnir í körfubolta hafa sér til dægrastyttingar er kveðskapur. Sem kunnugt er skipar hinn skagfirski Axel Kárason sæti í liðinu og mun honum hafa þótt kveðskapur liðsfélaga sinna hálfgerður leir, sem varð til þess að hann orti baráttuóð til íslensku leikmannanna sem munu spreyta sig í Berlín.

Baráttuóðurinn, sem að sögn Axels er ortur í anda þjóðskáldsins Davíðs Stefánssonar, hljómar svo:

Leggja nú á lífsins öldur,
ljós í brjóstum þeirra skína.
Eru landsins sverð og skjöldur,
sterkir duginn ávallt sýna.

Smæstir standa meðal þjóða,
sameinaðir þó halda vörð.
Því tryggð og trú við allt það góða,
tendrar elda um alla jörð.

Með vilja og von seglin reisa,
vindar blása strax í nausti.
Einn og allir festar leysa,
á þessu litla fagra hausti.

Mót risum eigi bræður blikna,
berjast, gleðjast, njóta nú.
Kappar þessir aldrei kikna,
keikir spyrja, hver ert þú?

Fleiri fréttir