Bach og jólin í Þíngeyrakirkju
Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari heldur tónleika í Þingeyraklausturskirkju laugardaginn 28. nóvember næstkomandi klukkan 13:30 til 14:15 undir yfirskriftinni Bach og jólin. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Johann Sebastian Bach, jólalög og hugleiðingar um jólin. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð á aðventunni sem haldin verður víða um land.
Aðgangur er ókeypis, en tekið verður við frjálsum framlögum. Allir eru velkomnir og posi verður á staðnum.
Þá má geta þess að Ólöf tekur þátt í aðventutónleikum í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudaginn 29. nóvember klukkan 20:00 til 21:00.
Heimild: Húni.is
