Samtal um framtíð skemmtiferðaskipa í Skagafirði 2030–2034

Séð yfir Sauðárkrókshöfn. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS
Séð yfir Sauðárkrókshöfn. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS

Skagafjörður boðar til samtals við ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu um komu skemmtiferðaskipa í sveitarfélagið þriðjudaginn 8. desember kl. 17:00 á Kaffi Krók. Á fundinum verða kynnt drög að stefnu og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa 2030–2034 sem unnin var af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Fulltrúar frá Iceland Travel, Cruise Iceland og SSNV koma á fundinn og deila sinni reynslu og sýn á tækifærin sem felast í komu skemmtiferðaskipa í Skagafjörð.

Sveitarfélagið hvetur alla ferðaþjónustuaðila til að taka þátt í samtalinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Boðið verður upp á súpu og kaffi.

Hægt er að skrá sig á hlekk á síðu Skagafjarðar >

Fleiri fréttir