Bændadagar í Skagfirðingabúð

Skagfirskir Bændadagar hefjast í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki í dag en þar verður hægt að gera góð kaup á fjölbreyttu úrvali af matvælum úr skagfirsku hráefni. Bændur munu bjóða gestum að smakka á ýmsum vörum úr þeirra framleiðslu milli klukkan 14 og 18, í dag og á morgun.

Meistarakokkurinn Árni Þ. Arnórsson er gestakokkur Bændadaga og ætlar að töfra fram dýrindis rétti fyrir gesti og gangandi.

Auk alls matarins verður margt annað á boðstólnum í búðinni þar sem ýmis tilboð verða í gangi, t.d. á raftækjum og lopa. Einnig verður kynning á nýju Dolce Gusto kaffivélunum og boðið upp á dýrindis kaffi eða Nesquick kakó.

Fleiri fréttir