Bændur kynntu sér nýjungar í landbúnaði
Vélaval í Varmahlíð stóð fyrir forvitnilegu námsskeiði í gær þar sem tekið var fyrir helstu þættir er lúta að grunnhönnun, frágang og tæknilegar lausnir í fjósum. Bændur víða að fjölmenntu á námskeiðið og kynntu sér helstu nýjungar á sviði mjaltatækni og hönnunar á mjaltaaðstöðu sem og mikilvægustu breytingar á hönnunarforsendum síðustu 10 ár. Fyrirlesari var Snorri Sigurðsson, ráðgjafi við Þekkingarsetur landbúnaðarins í Danmörku.
Snorri Sigurðsson, ráðgjafi við Þekkingarsetur landbúnaðarins í Danmörku var fyrirlesari á námskeiðinu.
„Snorra Sigurðsson þekkja flestir bændur hér á landi en hann hefur unnið við bæði kennslu og rannsóknir í tengslum við nautgriparækt í mörg ár og hefur verið ötull við að miðla fræðslu til bænda með tíðum greinarskrifum í Bændablaðið og á heimasíðu Landssambands kúabænda. Snorri starfar nú sem ráðgjafi hjá Þekkingarsetri landbúnaðarins í Danmörku og er hans aðalstarf að leiðbeina dönskum kúabændum um atriði sem lúta að mjólkurgæðamálum, tækni í fjósum og aðbúnaði gripa og hönnunar á nærumhverfi þeirra,“ segir á heimasíðu Vélavals.