Baldur og Katrín mæta til leiks
Rallýáhugafólk leggur land undir fót um helgina en þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fer fram í Skagafirði 22. og 23. júlí næstkomandi. Það er Bílaklúbbur Skagafjarðar sem heldur keppnina en hátt í tuttugu áhafnir eru skráðar til leiks. Eru þar á meðal helstu rallýkeppendur landsins.
Meðal þeirra eru Daníel og Ásta Sigurðarbörn og Aðalsteinn Símonarson ásamt Sigurði Braga Guðmundssyni. Sauðkrækingurinn Baldur Haraldsson mun einnig mæta til leiks með skagfirskri unnustu sinni, Katrínu Maríu Andrésdóttur. Er þetta frumraun hennar sem keppandi en hún starfaði um árabil fyrir Bílaklúbbs Skagafjarðar og keppa þau skötuhjú undir merkjum klúbbsins. Húnvetningurinn Guðmundur Snorri Sigurðsson mun einnig taka þátt ásamt Magnúsi Þórðarsyni, en Guðmundur Snorri keppir einnig undir merkjum Bílaklúbbsins.
Keppnin hefst klukkan 18:00 á föstudag við Skagfirðingabúð. Liggur leiðin fyrst upp á Þverárfjall þar sem ekið verður eftir gamla þjóðveginum, ýmist sunnan eða norðan við núverandi þjóðveg en honum er lokað á meðan. Að loknum tveimur umferðum á Þverárfjalli verður haldið til baka á Sauðárkrók þar sem ekin verður sérleið á hafnarsvæðinu líkt og undanfarin ár. Er sú leið afar heppileg fyrir áhorfendur til að fylgjast með, þægilegt er að sitja í brekkunni fyrir ofan Kjarnann. Að loknum tveimur umferðum við höfnina verður tekið næturhlé við Skagfirðingabúð.
Keppni hefst síðan aftur klukkan 9:00 á laugardagsmorguninn er haldið verður upp á Mælifellsdal. Sú leið er flestum keppendum kunnug en um langa og krefjandi sérleið er að ræða, rúmlega 23 km. Er því nauðsynlegt að halda einbeitingu en margir keppendur hafa einmitt fallið úr keppni á þessari leið á undanförnum árum. Þaðan verður haldið inn í Vesturdal og ekin þar rúmlega 10 km leið, m.a. yfir eina á. Hafa ófáir stuðarar orðið eftir þar þegar keppnisskap er komið í hæstu hæðir. Síðasta leið dagsins er svo þekkt áhorfendaleið um Nafir en hún hefst við Vörumiðlun. Ekið er í gegnum svæði Steypustöðvarinnar, upp hjá motokross-brautinni og síðan hringur um Nafirnar. Eru margir skemmtilegir staðir þar fyrir áhorfendur að fylgjast með.
Keppni lýkur klukkan 16:00 við Skagfirðingabúð með tilkynningu úrslita. /Fréttatilkynning