Barið í brestina – seinasta sýningarhelgin
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
08.05.2015
kl. 09.37
Um helgina verða sýndar þrjár sýningar á gamanleiknum Barið í brestina og eru þær jafnframt þær seinustu. Leikritið er eftir Guðmund Ólafsson og gerist á sambyggðu heilbrigðisstofnuninni og elliheimilinu Lífsvon. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson.
Miðasala er í síma 849 9434 og eru sýningar eftirfarandi:
- 8. sýning föstudag 8/5 kl. 23 (miðnætursýning)
- 9. sýning laugardag 9/5 kl. 17
- LOKASÝNING sunnudag 10/5 kl. 20
Hér má skoða heimasíðu leikfélagsins.