Barnamenningardagar í Skagafirði

Barnamenningardagar verða haldnir í Skagafirði dagana 5.-7. maí næstkomandi.  Barnamenningardagarnir eru hugsaðir sem hátíð fyrir börn á aldrinum 1 til 10 ára þar sem þeim gefst kostur á að sækja menningar og lista tíma. Boðið verður m.a. uppá danskennslu, tónleika, sögustund og útigleði. 

„Hugmyndin er að auka og bæta menningarflóru Skagafjarðar og stuðla þannig að eftirsóknarverðara samfélagi. Barnamenningardagar eru partur af verkefni Tónadans þar sem aðallega er unnið með uppbyggingu og metnað á sviði menningar barna í Skagafirði,“ segir í fréttatilkynningu.

Tónadans er hugmynd og verkefni þeirra Jóhönnu Marínar Óskarsdóttur og Kristínar Höllu Bergsdóttur og hafa þær í sameiningu haldið tónlistarnámskeið fyrir börn, fengið til sín danshóp sem setti upp barnasýningu, haldið tónleika og fleira.

„Væntingar þeirra eru þær að Barnamenningardagar nái fótfestu í Skagafirði og verði árlegur viðburður, sem vaxi og dafni með hverju ári.  Námskeiðum fjölgi, fleiri komi að hátíðinni og menningarstarf barna í Skagafirði muni blómstra og aukast frá því sem nú er.“

Það sem nú verður boðið uppá á Barnamenningardögum verður dansnámskeið fyrir börn frá 2 - 9 ára þar sem foreldrar fylgja yngstu börnunum, kennari er Guðbjörg Arnardóttir danskennari. Fjölskyldutónleikar þar sem hljóðfæri úr strengjafjölskyldunni verða kynnt, sögustund þar sem spennandi ævintýri verður lesið fyrir börnin og svo útigleði þar sem börn og foreldrar geta skemmt sér saman.

Skráningar er þörf á dansnámskeiðið en á aðra viðburði er hægt að mæta án skráningar. Frítt er á sögustundina og í útigleðina.

Allar nánari upplýsingar eru á facebook-síðu Tónadans.

Barnamenningardagar i Skagafirdi

Fleiri fréttir