Myndlistasýning barna í Hillebrandtshúsi á Blönduósi

Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall er í fullum gangi á Norðurlandi vestra. Hátíðin hófst 21. október og stendur hún til 4. nóvember, undir yfirskriftinni Öll saman. Nú á föstudaginn opnar myndlistasýning í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi en þema hennar er Börn.

Á henni sýna börn og ungmenni í leikskóla og grunnskóla Húnabyggðar listaverk sín sem þau hafa unnið í skólanum. Sýningin verður opin föstudaginn 30. október, sunnudaginn 1. nóvember og mánudaginn 2. nóvember klukkan 16-17:30 alla dagana.

Nafnið Skúnaskrall vísar til samstarfsins á svæðinu: Sk fyrir Skagafjörð og -úna- fyrir Húnavatnssýslurnar, auk þess sem -skrall þýðir einfaldlega að skemmta sér saman. Dagskráin er fjölbreytt en hana má skoða á www.skunaskrall.is.

Heimild: Húni.is

Fleiri fréttir