Barnastarf hestamannafélaganna í Skagafirði hafið

Barnastarf hestamannafélaganna í Skagafirði hófst með kennslu þriðjudaginn 22. janúar og laugardaginn 26. janúar í reiðhöllinni Svaðastöðum. Á heimasíðu Léttfeta kemur fram að fyrirkomulagið er með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár. Boðið er upp á kennslu um helgar og kennslu á virkum dögum og þá tvisvar í viku, þriðju- og fimmtudaga.  

Um helgarstarfið sér Hafdís Arnardóttir reiðkennari og nýtur hún aðstoðar Ingunnar Söndru Arnþórsdóttur leiðbeinanda. Kennslan virka daga er í umsjá reiðkennaranna Sölva Sigurðssonar, Þórarins Eymundssonar, Elvars Einarssonar og Hafdísar Arnardóttur.

Hópar á virkum dögum:

Hópur 1   - kl 17:00   - Unnur Rún, Stefanía, Aníta Ýr
Hópur 2   - kl 17:45   - Anna Baldvina, Silvía, Stella,
Hópur 3   - kl 18:30   - Herjólfur Hrafn, Þórir Árni, Guðný Rúna, Júlía Kristín, Hólmar Björn
Hópur 4   - kl 19:15   - Þórdís Inga, Ásdís, Viktoría, Ragnheiður Petra

Hópar um helgar:

Hópur 1   - kl. 11:00   – Herdís María, Halla Margrét, Heiðdís Líf, Ólöf Bára, Hrafnhildur
Hópur 2   - kl. 11:00   – Hrefna Guðrún, Þórgunnur, Sara Líf, Viktoría, Anna Karen
Hópur 3   - kl. 11:45   – Laufey Cara, Heiðrún, Ingimar Eyberg, Jörundur, Ragnhildur
Hópur 4   - kl. 11:45   – Bjarney Lind, Alma Karen, Sólrún Silfá, Hildur Heba, Telma Ösp
Hópur 5   - kl. 12:30   – Gísli, Jóhann Orri, Orri Sigurbj., Helena Erla
Hópur 6   - kl. 12:30   – Sóley Dögg,Uni Dalmann, Sigurður Pétur

 

Fleiri fréttir