Basile áfram með Stólunum næsta vetur

Það stefnir í góða skemmtun í Síkinu næsta vetur. MYND: DAVÍÐ MÁR
Það stefnir í góða skemmtun í Síkinu næsta vetur. MYND: DAVÍÐ MÁR

Í rilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastólst segir að Dedrick Basile hafi samið við Tindastól um að leika með liðinu næstkomandi tímabil. Basile var einn af burðarásum liðsins í fyrra og er endurkoma hans mikið ánægjuefni. „Ég er kominn aftur! Við eigum óklárað verkefni fyrir höndum. Let´s gooo!

Þetta eru auðvitað hinar fínustu fössarafréttir og ættu stuðningsmenn Stólanna að fara með breitt bros inn í helgina.

Feykir spurði Arnar þjálfara hvernig honum litist á að að halda Basile á Króknum. „Mjög ánægður að fá Baisle aftur. Hann er vinnusamur leikmaður og hefur gæði. Hann hefur marg sannað sig sem einn af betri leikmönnum deildarinnar.“

Fleiri fréttir