Bein lýsing frá leik Tindastóls og Njarðvíkur
Leik Tindastóls og Njarðvíkur verður lýst í beinni útsendingu frá Talrásinni á morgun, 16. maí. Útsendingin byrjar kl. 13:45, en samkvæmt upplýsingum frá Talrásinni er ætlunin að lýsa sem flestum útileikjum Tindastóls í sumar.
Leikurinn fer fram í Njarðvík og Skagfirðingar eru hvattir til að stilla á FM 93.7 til að fylgjast með.
Samkvæmt upplýsingum frá Talrásinni er stöðin landshlutaútvarp sem þýðir að leiknum verður aðeins lýst frá sendlinum hér í Skagafirði en ekki á höfuðborgarsvæðinu, svo dæmi sé tekið. Því er fólki bent á að það verður líka hægt að hlusta á heimasíðu talrásarinnar.
Talrásin forvarnarútvarp hóf útsendingar síðustu helgina í apríl og er Sverrir Júlíusson dagskrárstjóri Talrásarinnar í viðtali Feyki vikunnar. Þar segir hann m.a. ætlunina að koma heimsækja Skagafjörð í sumar og vera með beina útsendingu á laugardegi.
„Þar sem allt okkar lið kemur að kíkja á ykkur og gerum okkur glaðan dag með fólkinu á svæðinu. Við vonum að Skagfirðingar taki þessu framtaki vel og hlusti á okkur.“