Bein útsending frá KS-Deildinni

Í kvöld verður keppt í fjórgangi í KS-deildinni en eins og komið hefur fram áður er búist við harðri keppni bestu knapa norðan heiða. Sú nýjung verður viðhöfð að í fyrsta skipti verður sent beint frá keppninni á Internetinu en það mun vera frumraun á þeim bænum.

Um prufuútsendingu er að ræða og óhætt að segja þetta spennandi valkost fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á keppnir í KS-deildinni.

Það er Viggó Jónsson athafnamaður og sveitastjórnarmaður í Skagafirði sem hefur veg og vanda að útsendigunni. Sent verður út allt kvöldið, allt frá forkeppni sem hefst kl: 20:00 til loka keppninnar. Hægt er að ná útsendingunni gjaldfrítt  á slóðinni http://wms.vodafone.is/tindastoll .

Fleiri fréttir